Margrét Arna leikkona: „Var ákveðin í því að verða þessi karakter“
Margrét Arna Ágústsdóttir fer með hlutverk uppreisnarseggsins Scaramouche í söngleiknum We Will Rock You. Leið hennar í hlutverkið var þó ekki auðveld því alvarleg veikindi settu strik í reikninginn rétt fyrir prufur.
Margrét Arna lýsir persónunni Scaramouche sem dálítið trylltum villingi og ákveðinni konu sem neitar að lúta lögmálum neytendasamfélagsins. „Hún þráir að brjótast út og finna eitthvað stærra og betra,“ segir Margrét, sem viðurkennir að hún þurfi ekki að leita langt eftir innblæstri. „Ég er dálítið lík karakterunum mínum; það er ákveðinn prakkari í mér og ég get verið hvöss á tímum. Erfiðast er kannski að halda þessari miklu orku út alla sýninguna.“
Sigraði veikindin og fékk hlutverkið
Ferlið hófst fyrir löngu hjá Margréti, sem situr í stjórn Leikfélags Keflavíkur, en hún varð strax ástfangin af karakternum þegar handritið var valið. Skömmu fyrir prufur í nóvember sló hins vegar áfall niður þegar hún fékk blóðtappa í lungun.
„Það var alveg tvísýnt á tíma hvort ég kæmist yfirhöfuð í prufur. En ég mætti og fékk hlutverkið. Allt er gott sem endar vel,“ segir hún æðrulaus.
Bilað magn af talenti
Margrét á ekki til nógu sterk orð til að lýsa samstarfsfólki sínu í Frumleikhúsinu. „Þessi hópur er bara með bilað magn af talenti. Þetta er hæfileikaríkasta fólkið á Suðurnesjunum og víðar. Allir í þessu húsi eiga svo sannarlega heima á þessu sviði.“
Hún nefnir sem dæmi að stundum þurfi að grípa til þess að „toga fólk inn“ ef vantar ákveðna týpu, eins og gert var með þá Arnar Inga og Guðjón sem mættu ekki í prufur en voru fengnir til að styrkja hópinn.
Aðspurð hvað hún vilji segja við þá sem velta fyrir sér miðakaupum er svarið einfalt: „Ef þú mætir ekki á þessa sýningu, þá ertu að missa af svakalegum sjói. Þú átt eftir að sjá eftir því.“




